Lúthersk hjónahelgi er stór hópur hjóna sem hafa farið á hjónahelgi. Markmið samtakanna er að halda hjónahelgar og hjónanámskeið. Námskeiðin eru flutt af fernum hjónum, sem hafa verið sérstaklega þjálfuð. Fjöldi annarra hjóna koma að undirbúiningi og aðstoð. Lúthersk hjónahelgi hefur einkarétt á kennslunni í gegnum sambærileg samtök World Wide Marriage Encounter. Námskeiðið er byggt á jákvæðum kristnum grunni. Starfið er allt unnið í sjálfboðavinnu og nýtur engra styrkja. Stjórn Lútherskrar hjónahelgar samanstendur af fernum hjónum. Formaður stjórnar er sr. Magnús Björn Björnsson. Til að fá nánari upplýsingar má senda póst á magnus.b.bjornsson@outlook.com.